Table of Contents
Main help menu
Close help
 
Kjölur og Landsmót 2006

Í júní mánuði árið 2006 lögðum við af stað austur fyrir fjall, nánar tiltekið í Hreppana. Þaðan ætluðum við að hefja langa, stranga en jafnframt ótrúlega skemmtilega hestaferð norður Kjöl.

 

Ferðin átti síðan að enda á Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum viku síðar. 

 

Eins og sést á þessum myndum var veðrið í byrjun ferðar alveg yndislegt.

Lagt var afstað á fimmtudagskvöldi frá Syðra Langholti niðrá Sóleyjarbakka. Sá stutti túr gekk heldur brösulega og margir bændur örugglega ekki ennþá búinir að fyrirgefa okkur.  En þetta var óvart :)

Þaðan var síðan riðið af stað í ferðina um hádegi daginn eftir.

Hér eru nokkrir sætir strákar sem fóru líka í ferðina. Þeir heita Óli, Björn Örvar og Simmi sæti. 

 

Fimmtudagskvöldið var smá húllumhæ í Syðra langholti og þar bættust tveir strákar í hópinn þeir Þórður, Hlynur og Lárus. Við tjúttuðum frammá nótt, fórum í pottinn og skemmtum okkur konunglega

Frá Sóleyjabakka riðum við á föstudeginum og skildum síðan hestana eftir í xxx. Við gistum sjálf í Syðra Langholti. Hér erum við að fara frá xxx á laugadeginum.

Frá xxx var riðið uppí Helgaskála og þar gistum við í kofa ræfli, rafmagnslausum og klósetlausum. En það var sko bara aukaatriði, allir komust á leiðarenda óslasaðir og þreyttir og það skiptir meira máli. Lárus og Óli tylltu sér á pallinn eftir góðan dag og nutu lífsins.

Daginn eftir var síðan riðið úr Helgaskála yfir í xxx. Veðrir var svipað, skýjað en þurrt. Þennan dag var riðið upp eftir Laxárgljúfrum og það var strembin leggur fyrir mig :)

En öll komum við nú heil á húfi í hlað og ég var mjög fegin þegar þessum degi lauk.

Óli var á bíl þennan dag en hér eru myndir af Birni Örvari þegar hann kom í hlað, mæðgurnar þegar þær mættu og mynd af stóðinu líka

Þegar komið er svona langt inní land og í þessu landslagi eru ekki neinir bithagar. Því þarf að gefa rúllur og rúllurnar eru ekki alltaf inní gerðinu. Því upphófst alveg svakalega mikil "karlmennskukeppni" í rúllurúlli. Strákarnir stóðu sig alveg eins og hetjur og sáu til þess að hestarnir okkar fengu vel að borða eftir langan og strangan dag

Eftir allt puðið ákvað Björn Örvar að nú væri tími til að slaka á. Það var alveg rétt álýktað hjá honum

Dagarnir voru oft mjög langir og mjög strangir og voru bæði hestar og menn orðnir mjög þreyttir þegar komið var í hús. Þá var hvíldin vel þegin. Hér eru tvær myndir af aðal skvísunni henni Skutlu minni.

Á myndinni hægra meginn sýnist mér hún vera sofnuð á öxlinni á mér.

Mamma og Tangó tóku sig til og kúrðu saman útí túni seint um kvöldið.

Hér til vinstri er Óli að taka Úlf minn til kostanna - ekkert smá flottir saman :)

Næst síðustu nóttina gistum við í Kerlingafjöllum, þá komumst við loksins í bað og heitan pott, sváfum á þokkalegum rúmum og það meiraðsetja stytti upp og við sáum til sólar :)

Um kvöldið í Kerlingafjöllum fengum alveg frábæran mat, vín og eftir matinn spiluðu nokkrir úr hópnum á gítar og við sungum öll með. Björn Örvar var einn af þeim sem spilaði

Hér vinstra meginn er verið að bíða eftir matnum og til hægri má sjá þær allra hörðustu í ferðinni, mömmu og Viggu, þær létu sko ekkert stoppa sig

Hér má sjá mikla hestamenn eins og Frímann, og Jakob til hægri og Óla Blö og Bjössa Blö til vinstri. Síðan eru Svana og Kjartan fyrir neðan þá feðga.  Neðst fyrir miðju eru mamma og Matti

Þegar leið og kvöldið datt okkur Óla í hug að fara útí haga þar sem hestarnir okkar voru og klappa þeim. Þeir voru alveg gjörsamlega búnir á því og þá sérstaklega Úlfur minn sem var að fara í sína fyrstu ferð á ævinni og ekki nema 6 vetra.  Hann lifði nú ferðina af en var ekki notaður neitt nema fyrstu 2 dagana og síðan á 6 degi.. En hann liggur hér hægra meginn eins og hann sé skotinn elsku karlinn. Hinar myndirnar tala sínu máli sjálfar.

Hér má sjá þá félaga Sporð og Vilja kljást hver við annan

Hér sést Óli minn með nýjasta meðliminn sinn hann Blöndal. Eins og sést hafa þeir báðir, og þá sérstaklega sá síðarnefndi gaman af því að láta mynda sig svona úti í heyinu.

Greinilega fleiri en hestarnir þreyttir :)

En eftir þetta frábæra kvöld og þessa yndislegu nótt í Kerlingafjöllum var ferðinni að sjálfsögðu haldið áfram næsta dag. Allur hópurinn var gjörsamlega endurnærður og hreinn eftir gott bað og góðan nætursvefn.

Hér eru nokkrar mjög flottar myndir af stóðinu okkar. Þetta voru uþb. 60 hestar í það heila. Eins og sést var lagt af stað í mjög góðu veðri en það breyttist nú fljótlega seinnipartinn og þá hvessti allt svakalega eins og myndirnar hér að neðan sýna.

Hér má sjá Óla prufa Loka í fyrsta skipti :)

Fyrsti túrinn á Loka gekk vonum framar og geislaði Óli alveg eins og sjá má. Björn Örvar stóð og horfði á fullur aðdáun :)

Ég var á bílnum þennan dag með mömmu en missti nú ekki af showinu

Hér erum við mamma í góðum félagsskap með Simma og Kolbeini Kaptein (Hjálmar driver). En hann keyrði bílinn hanns Simma á daginn. Á litlu myndinni má sjá Hjálmar bruna í burtu með kerruna í eftirdragi

 

Í næsta stoppi þurfti að skipta um hesta og eins og venja er gekk á ýmsu.  Enda mjög hvasst og sandfokið alveg eftir því. En hestamenn eru seigir og létu það ekki eyðileggja fyrir sér

Ég tók líka nokkrar myndir af umhverfinu þegar ég var að keyra á milli staða.

Eins og sést á þessum myndum er allt landslag á þessum slóðum mjög bert og napurt. Mikið um meli og sléttur og sand og grjót en minna um tún, mýri og skóga. Skemmtileg tilbreyting :)

LOKSINS! ! ! Eftir 6 daga ferð í roki, rigningu og kulda. Sturtuleysi, rafmagns og klósettleysi komum við loksins, ríðandi, á Landsmót. Þvílíkt sjokk að sjá allt þetta fólk saman komið. Við vorum jú ekki búin að hitta hræðu í tæpa viku nema þennan yndislega hóp.

Hér má sjá setninguna sjálfa. Efst til vinstri er ungfrú Ísland í ljósbláum kjól. Hér til hliðar er síðan smá brot af þeim fjölda hesta sem voru í atriðinu.

Það var kominn slatti í brekkuna þegar Landsmótið var sett eins og sjá má.

Hér til hægri erum við fallegu hjónin í brekkunni frekar þreytt eftir vikuna en sátt og sæl. :)

Við hittum alveg fullt af skemmtilegu fólki á mótinu eins og t.d. Ingu og Örn, Gunna og Guggu, Dóru og Klemma og fullt af öðrum sem náðist ekki mynd af. Hér til vinstri má sjá gömlu vera að  rekja ferðasöguna fyrir viðstadda.

Inga og Örn fengu verðlaunapening fyrir graddann sinn sem fór á kostum á mótinu en var svo óheppin að slasa sig á síðustu metrunum.

Hér má sjá aðal töffarana á svæðinu, ég veit reyndar ekki hvaðan allt þetta áfengi kom, það var sko ekki á okkar vegum :)

Við ákváðum að vera einni nótt lengur á Landsmótinu og það var orðið annsi tómlegt þegar við vöknuðum á mánudeginum. Við ákváðum að bruna í bæinn en stoppuðum að sjálfsögðu á leiðinni á einhverjum fallegum stað (sem ég man ekki hvað heitir) og tókum myndir. Takið vel eftir því hvað við erum fersk og engin þynnka eftir helgina.

 

Takk fyrir okkur

 

Kveðja Fallega fólkið

COMMENTS
Add a comment
Flag this tabblo as "may offend"